mosarimi

október 4, 2011

Bollakökur

Filed under: Matur, Uncategorized — geiramaja @ 8:16 pm

Um daginn lét ég loksins verða af því, ég bakaði mínar fyrstu bollakökur. Notaði uppskrift af vanillukökum sem ég lagaði svo til eftir hentugleika.

Sítrónu bollakökur með bláberjakremi

235 gr hveiti

2 tsk lyftiduft

125 gr smjör

1/2 tsk salt

250 gr sykur

1 tsk sítrónudropar

2 stk egg

180 ml  mjólk

Ofninn hitaður í 175°

Hveiti, lyftiduft og salt sett í skál og sett til hliðar.Smjör, sykur ogsítrónudropar sett í hrærivélaskál og hrært á meðalhraða í 3 mín. eða þar til deigið er létt og ljóst.Egg sett út í, eitt og eitt í einu og hrært vel á milli. Hveitiblandan sett  varlega saman við deigið og að lokum mjólkin. Blandið vel en varlega saman. Deigið sett í bréfform.Bakað í 17 – 20 mín. Látið kólna í bökunarmótinu í 5 mín og  taka þau síðan úr og látið kólna áfram á bakka.

Bláberja krem

1 eggjahvíta

500 gr flórsykur

100 gr smjör

5 msk bláberjasafi

Aðferð: Byrja á að búa til bláberjasafann, setja lúkufylli af bláberjum (mega vera frosin) í skál, 3 tsk af heitu vatni og merja berin. Þau eru svo síuð frá og vökvinn notaður.  Eggjahvítan og 100 gr af flórsykri þeytt saman og smjörið svo sett saman við. Bláberjasafinn settur saman við og svo flórsykur þar til réttri áferð er náð.

Kreminu er svo sprautað á kökurnar og þær skreyttar með bláberjum og sítrónuberki.

Súkkulaði bollakökur með súkkulaðikremi og hnetusmjöri

Sama uppskrift og af sítrónukökunum, nema vanilludropar eru settir í stað sítrónudropa. Einnig er 4 msk af kakódufti bætt við og smá mjólk þar til réttri áferð er náð. Kökurnar eru svo bakaðar og kældar.

Súkkulaði krem

1 eggjarauða

500 gr flórsykur

200 gr suðusúkkulaði

100 gr smjör

1 tsk vanilludropar

Þeytti saman, eggjarauðuna, flórsykurinn, smjörið og vanilludropana. Bræddi súkkulaðið yfir vatnsbaði. Blandaði því svo saman við kremið

Kreminu er svo sprautað á og skreytt með hnetusmjöri og möndlu

 

Hindberjafylltar vanillubollakökur með hindberjakremi

235 gr hveiti

2 tsk lyftiduft

125 gr smjör

1/2 tsk salt

250 gr sykur

1 tsk vanilludropar

2 stk egg

180 ml  mjólk

Ofninn hitaður í 175°

Hveiti, lyftiduft og salt sett í skál og sett til hliðar.Smjör, sykur ogsítrónudropar sett í hrærivélaskál og hrært á meðalhraða í 3 mín. eða þar til deigið er létt og ljóst.Egg sett út í, eitt og eitt í einu og hrært vel á milli. Hveitiblandan sett  varlega saman við deigið og að lokum mjólkin. Blandið vel en varlega saman. Deigið sett í bréfform.Bakað í 17 – 20 mín. Látið kólna í bökunarmótinu í 5 mín og  taka þau síðan úr og látið kólna áfram á bakka. Þegar kökurnar eru tilbúnar, má taka smá innan úr kökunni og setja hindberjasultu í staðinn.

Hindberjakrem

1 eggjahvíta

500 gr flórsykur

100 gr smjör

5 msk hindberjasulta

Aðferð:  Eggjahvítan og 100 gr af flórsykri þeytt saman og smjörið svo sett saman við. Hindberjasultan sett saman við og svo flórsykur þar til réttri áferð er náð. Ég setti matarlit líka til þess að ná bleika litnum, en þess þarf ekki.

Kreminu er svo sprautað á kökurnar og þær skreyttar.

 

september 25, 2011

Irma 1 árs

Filed under: Irma — geiramaja @ 6:19 pm

Margt hefur gerst síðan síðast.Hjörtur byrjaði í HÍ og ég líka. Svo byrjaði Irma hjá dagmömmu. Það gengur bara ótrúlega vel, hún er svo hress og kát bæði þegar hún fer á morgnanna og þegar við sækjum hana seinni partinn.

Hún varð 1 árs 16.september síðastliðinn. Við vorum með tvær veislur og Irma fékk fullt af flottu dóti og fötum. Takk kærlega allir sem komu :)

ágúst 20, 2011

Sultugerð

Filed under: Matur — geiramaja @ 9:31 pm

Ég elska, elska þenna  árstíma. Berin alveg spretta um allt, sveppirnir að koma og hægt að tína alls kyns lauf og jurtir í te. Í dag byrjaði ég í sultugerð, eitthvað sem ég geri á hverju ári, mismikið þó. Ég var að versla í Bónus í dag þegar mér er litið á 50 kr hilluna í grænmetiskælinum. Sé þar alveg bunka af jarðaberjaöskjum og ákveð að tékka á þeim. Þá eru þetta þessar líka fínu öskjur, öll jarðarberin meira og minna í fínu lagi. Svo ég keypti 6 öskjur og ákvað að sulta. Þegar ég fór svo að skera berin niður kom í ljós að þau voru öll nema 6 stk í toppstandi, við erum að tala um að 6 jarðaber úr þessum 6 öskjum voru ónýt, hin voru stinn og flott. Ég hefði aldrei lagt í þessa maníu nema af því berin voru svona ódýr.

Skar þau niður, þau vógu 1 kg niðurskorin. Setti í pott og marði aðeins og lét malla á vægum hita í ca 10 mín. og marði berin jafnt og þétt á meðan. Setti svo saman við sykurinn, 400 gr hrásykur og 200 gr hvítan sykur. Lét sykurinn leysast vel upp áður en ég hækkaði hitann og lét sjóða í ca 10 mín. Passa að hræra vel á meðan annars getur þetta brunnið. Svo athugaði ég hvort að sultan hlypi með því að setja smá á kaldan disk. Það vantaði smá uppá svo ég setti smá sultu hleypi. Setti svo allt í krukkur og merkti kirfilega. Tók reyndar smá frá í tilraunastarfsemi, setti anís saman við einn skammt og sérrí saman við annan.

 

Svo þegar ég var búin með þennan skammt, þá gat ég barast ekki hætt. Fór út og tíndi sólber. Setti þau í pott, þó vógu um 800 gr, með 550 ml af vatni go sauð við lágan hita í 25 mín. Setti sykurinn saman við, 600 gr af hvítum sykri. Lét hann leysast upp. Sigtaði svo hratið frá og tók saftina og sauð í 10 mín við hærri hita. Athugaði hleypnina, og bætti smá hleypi saman við. Setti á krukkur. Hratið er enn í sigtinu yfir skál og ég ætla að nota það, sjóða aftur uppá því og fá nokkrar krukkur í viðbót.

Á morgun ætla ég svo að tína rifsber :)

ágúst 4, 2011

Irma Katrín

Filed under: Irma — geiramaja @ 3:44 pm

Irma Katrín er orðin voðalega stór stelpa. Styttist í 11 mánaða aldurinn og 1 árs afmælið bara handan við hornið. Irma byrjar hjá dagmömmu 15 ágúst svo það er ekki langt eftir af tímanum okkar saman. Hún er komin með 5 tennur, tvær niðri og þrjár uppi. Hún er farin að labba með, ja eiginlega hlaupa með húsgögnum. Hún stendur í nokkrar sekúndur sjálf á gólfinu en lætur sig svo detta á bossann. Hún er voðalega varkár og mikil kveif svo hún þorir ekki mikið að prófa að sleppa sér.

Hún er að stíga uppúr veikindum, fékk einhvern kvefvírus og er núna búin að vera í um 10 daga að ná sér, en er öll að hressast og orðin sjálfri sér lík aftur.

Hún er farin að segja datt og notar það í tíma og ótíma. Hendir hlutum og segir datt og þar fram eftir götunum. Eins bablar hún allan daginn og er greinilega að reyna að segja eitthvað mjög merkilegt. Auðvitað er hún voðalega sæt og falleg eins og alltaf.

ágúst 2, 2011

Súkkulaði makkarónurnar

Filed under: Matur — geiramaja @ 6:07 pm

Sælkerinn ég er búin að eiga þvílíkan dekur dag. Byrjaði á dásemdar hádegismat, ristuðu brauði með sinnepi, gúrkum, steiktum lauk og folaldakjöti.

Í kvöldmat hélt ég áfram að nýta afgangana af folaldasteikinni og skellti í núðlurétt, með eggjanúðlum, agúrku, blaðlauk, sesamfræjum og Hoisin sósu. Afskaplega ljúffengt.

Ég ákvað að prófa að baka makkarónur í fyrsta skiptið. Þetta er greinilega eitthvað sem maður þarf að “mastera”, en tókst nú samt bara ágætlega og bragðið himneskt. Súkkulaði makkarónur með bleiku vanillukremi. Himneskt.

Mælieiningarnar eru svolítið off, því upprunalega uppskriftin er í amerískum mælieiningum.

1,9 dl möndluduft (ég malaði heilar möndlur í duft í blandaranum mínum)

rúmlega 2,5 dl flórsykur

3 eggjahvítur (litlar)

0,6 dl sykur

2 msk kakóduft

Hvíturnar eru þeyttar þar til hálfstífar, þá er hvíta sykrinum blandað smátt og smátt saman við og þeytt þar til stíft. Flórsykurinn, möndluduftið og kakóið er sigtað saman og svo sett út í hvíturnar 1/3 í einu. Mikilvægt að vinna blönduna svona saman, fyrst 1/3 og blanda það alveg og þegar það er alveg blandað þá næsta þriðjung og svo koll af kolli. Hvíturnar eiga að falla og úr þessu að verða deig. Ekki nota hrærivélina til þess að vinna blönduna saman, gerið það með sleikju. Þegar blandan er tilbúin setjið þá í sprautupoka, eða í ziplock poka eins og ég gerði og klippið gat á hornið. Sprautið svo fallegum (þarfnast æfingar hjá mér) hnöppum á tvær plötur. Þessi uppskrift er fyrir sirka 40 hnappa, sem gera 20 kökur. Látið svo standa í 30 mín á plötunum áður  en þið setjið plötuna í ofninn. Bakið í 15 mín við 150 °C. Látið svo kólna alveg á plötunum.

Gerið það krem sem þið viljið og skellið á milli, ég gerði vanillusmjörkrem og litaði það bleikt.

 

Piklaðar gúrkur

Filed under: Matur — geiramaja @ 12:32 pm

Ég er búin að vera nánast innilokuð heima hjá mér í 10 daga. Irma er búin að vera veik og svo varð ég veik. Mér finnst mjög leiðinlegt að vera veik og verð oft eirðarlaus og veit ekki hvað ég get gert af mér. Í dag er ég búin að hanga í sófanum svona framan af morgni, svæfa barnið og allt sem henni fylgir, já og prófa að gera piklaðar gúrkur.

Skoðaði nokkrar uppskriftir á netinu og ákvað svo að skella mér í þetta og setja smá mitt “töts” á þetta.

Fann góða krukku

skar niður u.þ.b. 1 /3 af íslenskri agúrku

fann til hvítvínsedik

anís

lárviðarlauf

vatn

salt

rósapipar

svartan pipar

Hlutföllin voru sirka svona :

1/3 agúrka niðurskorin

3/4 dl edik

1 msk svört piparkorn

1/2 msk rósapiparkorn

3 lárviðarlauf

2 anís-stjörnur

1 1/2 msk gróft salt

Byrja á að setja gúrkurnar í krukkuna, svo kryddin. Edikið svo og fylla nánast upp með vatni. Hræra svolítið í svo þetta blandist saman. Tilbúið til átu eftir 4-6 tíma í ísskáp en verður bragðmeira eftir því sem það geymist lengur.

 

júlí 27, 2011

að baka

Filed under: Matur — geiramaja @ 9:24 pm

eitt tekur við að öðru, ég saumaði ekkert í dag,í staðinn fór ég hamförum í bakstri. Bakaði til viðbótar við súkkulaðikökurnar kanilsnúða og pizzaumslög.

Notaði eitt og sama deigið,

400 gr hveiti

300 gr heilhveiti

30 gr þurrger

4 dl volgt vatn

80 gr smjörlíki

80 gr sykur

1 tsk salt

 

Allt sett saman í hrærivélaskál og unnið saman með króknum í 2 mín á minnsta hraða. Svo unnið betur saman á miðhraða í 6 mín. Þá er það látið hefast í skálinni í 30 mín. Þá sló ég deigið niður og mótaði snúðana og pizzaumslögin.  Setti á plötur og lét hefast í 60 mín. Bakaði svo við 220°C í 10 mín.

 

Jömmý súkkulaði- og möndlukökur

Filed under: Matur — geiramaja @ 8:17 pm

Skellti í eina tilraunauppskrift áðan.

125 gr smjör

175 gr hrásykur

1 egg

1 tsk vanilludropar

1/4 tsk salt

175 gr hveiti

1 tsk matarsódi

175 gr suðusúkkulaði

1 lúka af möndlum með hýði

Byrjaði á að þeyta saman, með K-inu,smjör og sykur, bæti svo egginu og vanillunni út í og hrærði smá. Setti svo hveitið, saltið og sódann saman við. Nennti svo alls ekki að búta niður suðusúkkulaðið og mðndlurnar með hníf, svo ég skellti því í blandarann, í sitthvoru lagi. Setti það svo saman við deigið,hrærði smá í viðbót. Notaði síðan matskeið til þess að móta kökurnar, 6 stk á hverja plöntu. Baka í 8 mín, taka út, láta standa á plötunni í 4 mín og svo kólna á grind.

Kom líka svona vel út, ótrúlega góðar! Og fallegar í gamla machintosh boxinu frá ömmu Geiru.

júlí 26, 2011

Saumaæðið

Filed under: Hannyrðir — geiramaja @ 10:30 pm

Ég fékk einhverja saumaveiki nýlega. Sauma alla daga, allan daginn. Er alveg að missa það í að sauma á Irmu Katrínu. Mér finnst þetta sérstaklega skemmtilegt því ég er ekki að kaupa neitt efni, er bara að nota það sem ég á og er búin að eiga alveg í mörg ár í einhverjum tilfellum.

Byrjaði á því að sauma leggings á Irmu úr kjól af mér. Ég keypti mér síðkjól fyrir mörgum árum síðan og notaði bara 1x sem slíkan og stytti hann svo. Kjólnum er ég löngu búin að henda en ég notaði það sem ég klippti af kjólnum í pils, leggings og berustykki á kjól handa Irmu. Í ermarnar og pilsið á kjólnum notaði ég svo afganga úr kjól sem ég upphaflega ætlaði að nota þegar ég var ólétt en endaði með að gefa Ríkey í afmælisgjöf,

 

 

 

 

Næst gerði ég tvennar buxur úr flónel efni sem Dagrún keypti handa mér í Boston. Gerði líka peysu úr þessu sama efni.

 

Svo í dag skellti ég í svona kósý prinsessukjól úr skikkjunni sem Hjörtur var með í steggjuninni. Lagaði líka nokkra matarsmekki sem ég var byrjuð á.

 

Dagrún keypti meira flónel efni fyrir mig í Boston og ég skellti í buxur og skokk í kvöld

 

Ég held svo ótrauð áfram, á enn helling af efni, er með tvennar buxur af Hirti og eina skyrtu sem ég er spennt að vinna eitthvað úr ásamt því að eiga helling af öðrum efnum.

júlí 19, 2011

múslítilraunir

Filed under: Matur — geiramaja @ 9:30 am

alltaf þarf maður að prófa eitthvað nýtt. Í gær urðu muslistykki fyrir valinu. Smellti saman í skál og bakaði… ekki flókið. Ég er svona sirk-kona í eldhúsinu, nákvæmar mælieiningar eru ekki uppáhalds. En í þessa uppskrift fór sirkabát:

3 dl hafrar

1 lúka rúsínur

10 döðlur skornar í bita

3 msk sesamfræ

1 pk muldar heslihnetur

2 msk 5 kornablanda

1 dós epla og perumauk fyrir börn frá HIPP

3 msk hunang

2 msk ólífuolía

Virkar frekar laust í sér, en ég setti þetta í möffinsformin mín og þrýsti vel niður. Bakaði svo tjahh… við 200 °C í ca 20 mín. Þá tók ég plötuna út og lét kólna og svo setti ég þetta aftur inn í 100 °C heitan ofn í ca 20 mín. Svo aftur út og kæla. Svo inn í 140 °C ofn í ca 20 mín. Þá slökkti ég á ofninum og lét kólna í honum og þá voru þær krispí og þéttar í sér.

og svo góðar með kaffinu :)

 

 

Eldri færslur »

Theme: Banana Smoothie. Bloggaðu hjá WordPress.com.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.